Næsti fundur Mæta á netinu
WorkaholicsAnonymous

12 spora samtök vinnufíkla á Íslandi

Finnst þér erfitt að slaka á?

Við erum fólk sem gat ekki hætt að vinna. Við hittumst í hverri viku, á staðnum og á netinu. Þú þarft ekkert að gera nema mæta.

Næsti fundur

þriðjudaginn — kl. 17:30

 

Hybrid-fundur · á staðnum og á netinu

Hvar

Gula húsið Tjarnargötu 20, 101 Reykjavík
Salur B á neðri hæð

Kannastu við þetta?

Tíu setningar. Merktu við þær sem eiga við þig.

Enginn sér svörin nema þú. Ekkert er sent neitt.

Þetta er ekki greiningarpróf og enginn getur sagt þér að þú sért vinnufíkill. Aðeins þú getur svarað því — og þú þarft ekki að vera viss til að mæta á fund.

Hvað er vinnufíkn?

Vinnufíkn, kulnun og þráhyggja vegna vinnu

Vinnufíkn getur birst í ýmsum myndum, svo sem áhyggjum og þráhyggju vegna vinnu, ólaunaðra verkefna eða áhugamála. Einnig er frestunarárátta eða fullkomnunarárátta sem gengur út í öfgar algengt vandamál. Vinnufíkill getur haft blöndu af þessu eða aðrar birtingarmyndir sem bitna á heilsu og samskiptum og taka upp tíma sem annars yrði uppbyggilegur. Þessi fíkn getur einnig valdið kulnun í starfi og einkalífi.

Vinnufíklar í Workaholics Anonymous sækjast eftir jafnvægi milli vinnu, einkalífs og umhyggju fyrir sjálfum okkur. Með því að byrja í prógramminu öðlumst við frið og æðruleysi og lækkum niður í rödd þráhyggjunnar sem veldur því að einbeitingin er á vinnu og verkefni. Við bjóðum ykkur að taka þátt í batagöngunni með okkur.

Þú þarft ekki að hætta að vinna.

Vinnufíkn er ólík flestum öðrum fíknum að einu leyti: við getum ekki lagt efnið frá okkur. Flest okkar þurfa að vinna áfram og vilja það. Það sem við leggjum niður er þráhyggjan — að vinnan éti svefninn, samböndin, heilsuna og allt sem er ekki vinna. Þetta snýst um jafnvægi, ekki bindindi.

Hvað gerist á fundinum?

Sextíu mínútur. Ekkert kemur á óvart.

Fyrsti fundurinn er langoftast það sem stoppar fólk. Þess vegna segjum við nákvæmlega hvað gerist.

17:25
Þú mætirEnginn skráir þig, enginn spyr um eftirnafn eða vinnustað. Þú getur líka tengst á netinu og haft myndavélina slökkta.
17:30
Fundurinn er setturLesinn er stuttur inngangur upphátt: hvað WA er og hvernig fundurinn fer fram. Nýliðar eru boðnir velkomnir — ef þú vilt ekki kynna þig máttu sleppa því.
17:40
Lesið úr efni WAStuttur kafli sem verður umræðuefni fundarins.
17:50
DeilingÞau sem vilja segja frá því hvernig vikan var. Engin ráðgjöf og engin viðbrögð. Þú mátt hlusta allan fundinn og segja ekki orð.
18:30
Fundi slitiðÞú mátt fara beint eða staldra við og spjalla. Enginn eltir þig.

Sniðið getur verið aðeins breytilegt milli funda, en ramminn er alltaf þessi.

Það sem fólk spyr að

Áður en þú mætir

Kostar þetta eitthvað?
Nei. Engin gjöld, engin skráning, enginn áskriftarpakki. Stundum gengur hattur um fyrir húsaleigu og þú mátt láta hann fara framhjá þér.
Þarf ég að tala?
Nei. Þú mátt hlusta allan tímann. Mörg okkar sögðu ekki orð fyrstu vikurnar.
Hvað ef ég þekki einhvern sem er þarna?
Þá eruð þið bæði á staðnum af sömu ástæðu. Nafnleyndin gengur í báðar áttir: það sem er sagt á fundi fer ekki lengra og enginn segir frá því hverjir mættu.
Er þetta trúarlegt?
Nei. Sporin tala um æðri mátt sem hvert og eitt okkar skilgreinir sjálft — eða skilgreinir alls ekki. Trúlaus, trúuð og allt þar á milli sitja á sama fundi.
Er þetta meðferð eða ráðgjöf?
Nei. Við erum ekki fagfólk og bjóðum hvorki greiningu né meðferð. Við erum hópur sem deilir reynslu sinni af sama vandamáli. Sum okkar nýta líka fagfólk samhliða — það er ekkert því til fyrirstöðu.
Ég er í kulnun. Á ég eitthvað erindi hingað?
Kulnun og vinnufíkn eru ekki það sama, en þær fylgjast oft að: mörg okkar keyrðu sig út áður en við áttuðum okkur á mynstrinu. Ef þú ert í starfsendurhæfingu eða veikindaleyfi áttu fullt erindi hingað, rétt eins og allir aðrir. Einn fundur segir þér meira en nokkur lýsing.
Ég er atvinnulaus / í námi / heimavinnandi. Telst það?
Já. Vinnufíkn snýst ekki um launaseðil. Hún getur allt eins beinst að námi, sjálfboðastarfi, heimilinu eða áhugamáli sem er löngu hætt að vera skemmtilegt.
Ég kemst ekki á þriðjudögum.
Sendu okkur línu á vinnufiklar@gmail.com. Það eru líka enskumælandi WA-fundir á netinu nánast alla daga vikunnar sem passa við íslenskan tíma.

Fundir

Alla þriðjudaga, 17:30–18:30

Næsti fundur
Á staðnum
Gula húsið, Tjarnargötu 20, 101 Reykjavík — Salur B á neðri hæð. Sjá á korti
Á netinu
Sami fundur, sami tími. meet.google.com/uyh-agcs-rci
Aðgangur
Ókeypis. Engin skráning, engin tilvísun, ekkert eftirnafn.
Netfang
vinnufiklar@gmail.com — við svörum öllum.

Fyrir fagfólk

Ef þú hittir fólk sem er að vinna sig í kaf

Ráðgjafar, sálfræðingar, mannauðsfólk og starfsendurhæfing rekast reglulega á fólk þar sem vinnan sjálf er orðin vandamálið. WA er gjaldfrjáls, krefst engrar tilvísunar og biðlistinn er enginn — næsti fundur er á þriðjudaginn.

Við erum sjálfstæð samtök, tengjumst engum stofnunum, meðferðaraðilum eða trúfélögum og þiggjum enga styrki utan frá. Við komum ekki í staðinn fyrir meðferð og keppum ekki við hana.

Við sendum þér plaköt og bæklinga á starfsstöðina þína, þér að kostnaðarlausu.

Ert þú þegar í sporunum?

Vinnan var hitt sem enginn talaði um

Mörg okkar komu fyrst í 12 spora starf vegna einhvers annars — áfengis, meðvirkni, matar — og uppgötvuðu svo að vinnan hafði laumast inn í plássið sem losnaði.

Ef þú kannast við sporin þarftu enga kynningu á forminu. Fundurinn er í sama húsi og margir aðrir fundir sem þú þekkir. Komdu bara.

In English

Workaholics Anonymous in Iceland

We are a small twelve-step fellowship for people whose working — paid or unpaid — has taken over their health, their relationships and their rest. There are no dues, no registration and no referral needed.

Every Tuesday, 17:30–18:30. In person at Gula húsið, Tjarnargata 20, 101 Reykjavík (Room B, lower floor) and online at the same time.

Meetings are held in Icelandic, but we will happily switch to English if someone in the room needs it — just say so, or email ahead.